Þetta er bloggsíða Ættarmóts Holtakotaættarinnar. Það stendur til að afkomendur systranna Rögnu, Ingu, Hlífar og Dóru Einarsdætra hittist eina helgi sumarið 2012.

Helgin sem um ræðir er 13. - 15. júlí.

Wednesday, August 13, 2008

Allt að smella saman

Brátt rennur stundin upp. Ég ætla að reyna að hafa þetta síðustu færsluna. Það er nokkurnveginn komið á hreint hvað við verðum mörg, en það er eins gott að taka það samt fram að þótt einhver hafi ekki getað sagt með vissu að hann kæmi, þá er fólk líka velkomið á síðustu stundu. Góða veðrið sem ég pantaði ætlar að skila sér svo það er bara um að gera að koma sér í ættarmóts góðaskapið og fara að hlakka (meira) til.

Dagskráin er ekki fullmótuð, en það er komin beinagrind sem lítur svona út (Staða dagskrárstjóra er ennþá laus, sjálfboðaliðar óskast):

Föstudagur: Fólk kemur og tjaldar eða kemur sér fyrir í þeim herbergjum sem búið er að panta. Ekki ákveðin dagskrá, en ef gott er veður væri upplagt að skella sér í labbitúr um nágrennið og kanna aðstæður?
Laugardagur: Fleira fólk kemur og kemur sér fyrir.
Kl. 12 – 14. Nefndin (Fríða og Jóhanna R líklega) aðstoða staðarhaldara við að innheimta greiðslu fyrir gistingu og kvöldmat. Það er sem sagt þá og ekki á öðrum tímum sem fólk borgar fyrir þá þjónustu sem það kaupir þarna á staðnum. Og sem kvittun fær fólk þá nafnspjald sem gott er að hafa sýnilegt það sem eftir er mótsins.
14 – 18? Leikir og fleira.
19? - ? Sameiginleg kvöldmáltíð, matseðill kemur fram í næstu færslu hér á undan. Dóra Björk ætlar að sjá til þess að einhver taki að sér veislustjórn (hún sjálf?), Helga Lilja ætlar að búa til sönghefti, Jóhanna R ætlar að koma með videó sem má kannski sjá þá ef staðarhaldara tekst að vera búinn að útvega skjávarpa. Fleiri tillögur vel þegnar. Kann einhver að spila undir fjöldasöng? Og tekið skal fram að þar sem bar er á staðnum er ekki gert ráð fyrir að fólk komi með eigin drykki inn í kvöldmatinn.
Sunnudagur: Fólk tínist í burtu sjálft að eigin geðþótta. Kannski maður byrji á kapphlaupi samt áður en fólk fer að pakka saman?

Pökkunarlisti: Nú, og það sem þarf að pakka er þá fyrst og fremst góða skapið og svo má kíkja í skúffur og gá hvort maður á í fórum sínum gömul nafnspjöld sem má endurnýta. Það stendur ekki til að vera með neinn ættarmótssjóð, þannig að fólk ætti ekki að hafa önnur útgjöld en það sem Húnavellir fá fyrir mat, gistingu og aðstöðu. Svo er um að gera að taka bolta, sippubönd, og allskonar útileikjatæki með. Og munið, þetta er á Húnavöllum, ekki í Húnaveri. Kíkið endilega á heimasíðuna sem tengt er á hér að ofan og athugið hvað er í boði á staðnum. Okkur ætti ekki að leiðast, svo mikið er víst.

Smá praktískt í lokin. Þeir sem lögðu út fyrir staðfestingargjaldi fá endurgreitt þegar mótið er búið, ég held það sé einfaldast að staðarhaldari hreinlega millifæri til baka á minn reikning og ég skipti því svo niður á þá sem voru búnir að leggja pening í púkkið. Þetta er auðveldara en að blanda staðfestingargjaldinu inn í það sem við svo borgum hvert fyrir sig núna um helgina.

Sjáumst :)
Fríðafrænka

6 comments:

Anonymous said...

Sælir ættingjar

Nú er komið babb í bátinn hjá mér og mínum. Við vitum ekki fyrr en á föstudag hvort við komum eða ekki. Bróðir Gunnars liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir alvarlegt umferðarslys s.l. mánudag og erum við alveg óviss hvort við verðum í ættarmótsfíling. Hann er allavega ekki mikill núna. Þetta fer alveg eftir því hvernig líðan hans verður þegar líður að helginni.
Búin að láta Jóhönnu vita.

kv. Eva

Hel said...

sönghefti tilbúin og ég ljósritaði líka allt eftir þær systur og Jónasínu úr bókinni sem kom út 2004, Vængjatök- kveðskapur sunnlenskra kvenna.

tjekkið á myndum þarna:
http://www.new.facebook.com/album.php?aid=31322&l=d9862&id=617242960

Anonymous said...

Hæ allir
Frábærar myndir Helga, takk fyrir það.
En annar sjáumst við öll á morgun ég hlakka til.
Jóhanna R

Anonymous said...

sæl aftur
Ef einhvern vantar far þá er ég ein í bílnum hjá mér og ég ætla að fara eftir hádegi á morgun.
símin hjá mér er 6994676
Kv. J.R

Anonymous said...

Eva: Það var leiðinlegt að heyra. Vonandi fer allt vel og við sjáumst um helgina.

Helga: hahahah, hrikalega tökum við okkur vel út á myndinni þarna úti á tröppum í Holtakotum, sérstaklega ég Ella og Heiðveg.

Fríða

Anonymous said...

Veðurspáin er mjög góð, þurrt og hiti milli 18 og 20 gráður seinnipartinn á laugardag. Nætur hiti um 10 gráður.
sjá www.belgingur.com