Þetta er bloggsíða Ættarmóts Holtakotaættarinnar. Það stendur til að afkomendur systranna Rögnu, Ingu, Hlífar og Dóru Einarsdætra hittist eina helgi sumarið 2012.
Helgin sem um ræðir er 13. - 15. júlí.
Helgin sem um ræðir er 13. - 15. júlí.
Thursday, June 28, 2012
Hverjir eru með?
Nú fer þetta að bresta á og rétt að fara að pota höndum fram úr ermum.
Búið er að afla upplýsinga um verð og hér koma þær:
Tjaldsvæðaverð:
Nóttin per mann 13 ára og eldri: 800
og rafmagn kostar 800.
Svo er einhver gistináttaskattur innheimtur sem er 100 krónur per tjald/húsvagn hverja nótt.
Þetta verð er með 20 % ættarmótsafslætti og gildir frá föstudegi til
sunnudags þannig að ef einhverjir vilja koma fyrr og eða fara seinna er verðið
fyrir umframnæturnar 1000.
Á tjaldsvæðinu eru snyrtingar, heitt og kalt vatn og sundlaug er á staðnum
þar sem hægt er að fara í sturtu gegn barnagjaldi.
Við verðum á fráteknu svæði sem mér skilst að sé næst húsunum og þegar
Heiðar pantaði í vetur slógum við á að verða plús/mínus 100 manns.
Innigisting:
Búið er að ráðstafa öllum herbergjunum, Heiðar heldur utan um þau mál og
þau kosta 5000 krónur per
nótt.
Svefnpokapláss í skólastofu kostar 1200
á mann nóttin, frítt fyrir 12 ára og yngri.
Athugið að ekki er í boði nein sala á mat á staðnum þannig að ekki er um að
ræða morgunverð með innigistingunni. Allir nesta sig sem sagt.
Við göngum út frá því að hver og einn geri upp fyrir sig gistikostnaðinn en
taki þá bara fram að hann sé partur af ættarmótinu.
Sameiginlegur kostnaður er þá að við tökum á leigu sal með eldhúsi
laugardaginn og þar eldum við, borðum og höfum gaman saman fram eftir kvöldi.
Leigan er 60.000 krónur.
Þegar ljóst verður hverjir koma verður verslað og hráefniskostnaði og
salarleigu deilt niður.
Við þurftum ekki að greiða neitt staðfestingargjald.
Okkur dettur í hug að í matinn verði læri og meððí, kannski má skoða aðra
kosti ef einhverjir hafa snilldarhugmyndir.
Við lýsum hér með eftir sjálfboðaliðum í vinnuna í kring um
laugardagskvöldið; matseldina, undirbúning og frágang.
Margar hendur vinna létt verk.
Varðandi aðrar máltíðir mun vera kostur á að fá á staðnum stór grill þar
sem væri kannski kjörið að elda saman. Þannig að ekki séu allir að drösla með
sér grillum og hálfnýta svo kannski kolin fyrir einn pylsupakka. Ekki sérlega
umhverfisvænt. Fólk hefur þá með sér kolaslatta, grillvökvann, eldfærin og
matinn.
Það sem við þurfum að gera núna sem allra
fyrst er að senda hér inn þáttökutilkynningar. Í fyrstu könnun létu margir vita af sér en nú skulum við staðfesta hér og láta koma fram hversu margir eru 12 ára og yngri. Ég ítreka enn að við
skulum nota bloggið sem mest fyrir samskiptin þar sem allir
tölvunotendur hafa þar aðgang. Þið megið svo setja leyndarmálin á aðra
samskiptamiðla J. Gætum þess líka vel að
halda fólkinu okkar upplýstu ef það notar ekki tölvu.
Þetta er líklega orðið gott í bili, nú er best að fara að líta hér inn
reglulega og þeir sem vilja setja hér inn færslur meiga gjarnan senda mér þær í
tölvupósti; ellatumsu@gmail.com
Bestu kveðjur frá Ellu og Heiðari.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
30 comments:
Við verðum þrjú eldri en 12 ára og eitt yngra og við höfum hugsað okkur að vera í tjaldi.
Hlökkum mikið til.
kv. Kjartan Róbertsson og fjölsk.
verðum 2..bæði á miðjum aldri
Helga Lilja og Aðalsteinn
Við Agnar tjöldum og mamma Hlíf verður í herbergi. Nú er ég að fylla út skjal með nöfnum okkar sem staðfesta, spennt að vita hvað við verðum mörg.
Við Fríða mætum tvö og verðum með okkar hjólhýsi
Palli og Fríða
Ég og Ívar verðum í tjaldi, ég veit ekki enn hvort Silja kemst.
Fríða
Hilmar Þór og fjölskylda eru 2 fullorðin og 2 undir 12 ára. Verðum í hjólhýsi
sæl öll
við verðum 3 kannski 5, það er vinnuhelgi hjá Arndísi og hennar maka og Ingvar Örn og hans kærasta fara hugsanlega vestur á firði á annað ættarmót :( já það er gert upp á milli ;)
kveðja Eva og Gunnar
p.s. við erum liðtæk bæði í eldamennsku og uppvask
endurtek hér með þátttökutilkynningu mína
elfa
Held ég komist því miður ekki.
- Andri Reynir Einarsson
Hæ Hæ við erum 2 eldri og 3 undir 12 ára og við verðum í tjaldvagni.
Kveðja Linda Heiðarsdóttir
Hæ, ég skrái hér með einn fullorðinn og tvö börn undir 12 ára aldri. Við verðum í tjaldi.
Það er pínu möguleiki á að Hinrik komist í matinn á laugardagskvöldinu en ég skrái hann þá síðar.
Kv. Brynja Einars
Hobbsídú. Ég kem og Einar sonur er 12 ára og kemur líka.
Jóhanna B.
Ég og konan mín ætlum að koma með börnin okkar 4. Þar af eru 3 undir 12 ára.
Við mætum 2 með eina 2 ára og verðum í tjaldvagni líklegast
Ég og Siggi mætum . verðum í bústað rett hjá . Þetta er vinnuhelgi hjá krökkunum
kveðja Eyrún
Ég og Birta líf mætum með 2 undir 3ára. verðum í Tjaldvagni..
Var að tala við mömmu og þau verða 2
kv Eyrún
Því miður kemst enginn af okkar fjölskyldu þ.e. Óli, og börn og barnabörn á ættarmótið.
KV. Þorbjörg Ólafsdóttir
Hæ,
Vid komum 2 fullordin og 2 undir 12 ára.
Vid viljum gjarnan fá svefnpokapláss.
Kv. Freyr Ævarsson
Vid komum á laugardeginum.
Kv. Freyr Ævarsson
Við komum tvö með 4 undir 12 ára, verðum í tjaldi.
Kv. Dórothea Ævarsdóttir
Sæl við verðum 2 fullorðin og 2 börn undir 12 ára. Verðum í tjaldi eða tjaldvagni
Kv. Sigurþór og fjölsk.
Það lítur ekki út fyrir að Marcia komist, þannig að ég verð einn. Þarf þá ekki á herbergi að halda.
-Einar K.
Við komum tvö fullorðin - og ég er til í eldhúsaðstoð. - Lora Einarsd.
Við komum tvö fullorðin - og ég er til í eldhúsaðstoð. - Lora Einarsd.
Til í að hjálpa við hvað sem er, Helga Lilja
Hæ Hæ og takk fyrir að standa í þessu fyrir okkur hin.
Við komum 4-5 fullorðin + 1 barn
kveðja,
Jóhanna Raganrs.
Að sjálfsögðu getum við hjálpað til í Eldhússtörfum eða hvað sem vantar
kv Eyrún /Siggi
við verðum 4-6 fullorðin og eitt barn
þórmar
ég mæti.
kv
Atli Bergmann
Post a Comment