Þetta er bloggsíða Ættarmóts Holtakotaættarinnar. Það stendur til að afkomendur systranna Rögnu, Ingu, Hlífar og Dóru Einarsdætra hittist eina helgi sumarið 2012.

Helgin sem um ræðir er 13. - 15. júlí.

Thursday, June 28, 2012

Hverjir eru með?


Nú fer þetta að bresta á og rétt að fara að pota höndum fram úr ermum.
Búið er að afla upplýsinga um verð og hér koma þær:

Tjaldsvæðaverð:

 Nóttin per mann 13 ára og eldri: 800

 og rafmagn kostar 800.

Svo er einhver gistináttaskattur innheimtur sem er 100 krónur per tjald/húsvagn hverja nótt.

Þetta verð er með 20 % ættarmótsafslætti og gildir frá föstudegi til sunnudags þannig að ef einhverjir vilja koma fyrr og eða fara seinna er verðið fyrir umframnæturnar 1000.

Á tjaldsvæðinu eru snyrtingar, heitt og kalt vatn og sundlaug er á staðnum þar sem hægt er að fara í sturtu gegn barnagjaldi.

Við verðum á fráteknu svæði sem mér skilst að sé næst húsunum og þegar Heiðar pantaði í vetur slógum við á að verða plús/mínus 100 manns.

Innigisting:

Búið er að ráðstafa öllum herbergjunum, Heiðar heldur utan um þau mál og þau kosta 5000 krónur per nótt.

Svefnpokapláss í skólastofu kostar 1200 á mann nóttin, frítt fyrir 12 ára og yngri.

Athugið að ekki er í boði nein sala á mat á staðnum þannig að ekki er um að ræða morgunverð með innigistingunni. Allir nesta sig sem sagt.

Við göngum út frá því að hver og einn geri upp fyrir sig gistikostnaðinn en taki þá bara fram að hann sé partur af ættarmótinu.

Sameiginlegur kostnaður er þá að við tökum á leigu sal með eldhúsi laugardaginn og þar eldum við, borðum og höfum gaman saman fram eftir kvöldi. Leigan er 60.000 krónur. Þegar ljóst verður hverjir koma verður verslað og hráefniskostnaði og salarleigu deilt niður.
Við þurftum ekki að greiða neitt staðfestingargjald.
Okkur dettur í hug að í matinn verði læri og meððí, kannski má skoða aðra kosti ef einhverjir hafa snilldarhugmyndir.
Við lýsum hér með eftir sjálfboðaliðum í vinnuna í kring um laugardagskvöldið; matseldina, undirbúning og frágang.
Margar hendur vinna létt verk.

Varðandi aðrar máltíðir mun vera kostur á að fá á staðnum stór grill þar sem væri kannski kjörið að elda saman. Þannig að ekki séu allir að drösla með sér grillum og hálfnýta svo kannski kolin fyrir einn pylsupakka. Ekki sérlega umhverfisvænt. Fólk hefur þá með sér kolaslatta, grillvökvann, eldfærin og matinn.

Það sem við þurfum að gera núna sem allra fyrst er að senda hér inn þáttökutilkynningar. Í fyrstu könnun létu margir vita af sér en nú skulum við staðfesta hér og láta koma fram hversu margir eru 12 ára og yngri. Ég ítreka enn að við skulum nota bloggið sem mest fyrir samskiptin þar sem allir tölvunotendur hafa þar aðgang. Þið megið svo setja leyndarmálin á aðra samskiptamiðla J. Gætum þess líka vel að halda fólkinu okkar upplýstu ef það notar ekki tölvu.
Þetta er líklega orðið gott í bili, nú er best að fara að líta hér inn reglulega og þeir sem vilja setja hér inn færslur meiga gjarnan senda mér þær í tölvupósti; ellatumsu@gmail.com
Bestu kveðjur frá Ellu og Heiðari.

30 comments:

Anonymous said...

Við verðum þrjú eldri en 12 ára og eitt yngra og við höfum hugsað okkur að vera í tjaldi.

Hlökkum mikið til.

kv. Kjartan Róbertsson og fjölsk.

Hel said...

verðum 2..bæði á miðjum aldri

Helga Lilja og Aðalsteinn

ella said...

Við Agnar tjöldum og mamma Hlíf verður í herbergi. Nú er ég að fylla út skjal með nöfnum okkar sem staðfesta, spennt að vita hvað við verðum mörg.

Páll Eyþór said...

Við Fríða mætum tvö og verðum með okkar hjólhýsi

Palli og Fríða

Anonymous said...

Ég og Ívar verðum í tjaldi, ég veit ekki enn hvort Silja kemst.

Fríða

Hilmar said...

Hilmar Þór og fjölskylda eru 2 fullorðin og 2 undir 12 ára. Verðum í hjólhýsi

Eva said...

sæl öll
við verðum 3 kannski 5, það er vinnuhelgi hjá Arndísi og hennar maka og Ingvar Örn og hans kærasta fara hugsanlega vestur á firði á annað ættarmót :( já það er gert upp á milli ;)

kveðja Eva og Gunnar

p.s. við erum liðtæk bæði í eldamennsku og uppvask

Elfa said...

endurtek hér með þátttökutilkynningu mína

elfa

Anonymous said...

Held ég komist því miður ekki.

- Andri Reynir Einarsson

Anonymous said...

Hæ Hæ við erum 2 eldri og 3 undir 12 ára og við verðum í tjaldvagni.
Kveðja Linda Heiðarsdóttir

Anonymous said...

Hæ, ég skrái hér með einn fullorðinn og tvö börn undir 12 ára aldri. Við verðum í tjaldi.

Það er pínu möguleiki á að Hinrik komist í matinn á laugardagskvöldinu en ég skrái hann þá síðar.

Kv. Brynja Einars

Jóhanna B. said...

Hobbsídú. Ég kem og Einar sonur er 12 ára og kemur líka.
Jóhanna B.

Óttar said...

Ég og konan mín ætlum að koma með börnin okkar 4. Þar af eru 3 undir 12 ára.

Heiðar Valur said...

Við mætum 2 með eina 2 ára og verðum í tjaldvagni líklegast

Anonymous said...

Ég og Siggi mætum . verðum í bústað rett hjá . Þetta er vinnuhelgi hjá krökkunum

kveðja Eyrún

Gunnar Rafn said...

Ég og Birta líf mætum með 2 undir 3ára. verðum í Tjaldvagni..

Anonymous said...

Var að tala við mömmu og þau verða 2
kv Eyrún

Anonymous said...

Því miður kemst enginn af okkar fjölskyldu þ.e. Óli, og börn og barnabörn á ættarmótið.

KV. Þorbjörg Ólafsdóttir

Freyr Ævarsson said...

Hæ,
Vid komum 2 fullordin og 2 undir 12 ára.
Vid viljum gjarnan fá svefnpokapláss.

Kv. Freyr Ævarsson

Freyr Ævarsson said...

Vid komum á laugardeginum.

Kv. Freyr Ævarsson

Dorothea said...

Við komum tvö með 4 undir 12 ára, verðum í tjaldi.

Kv. Dórothea Ævarsdóttir

Anonymous said...

Sæl við verðum 2 fullorðin og 2 börn undir 12 ára. Verðum í tjaldi eða tjaldvagni

Kv. Sigurþór og fjölsk.

Einar said...

Það lítur ekki út fyrir að Marcia komist, þannig að ég verð einn. Þarf þá ekki á herbergi að halda.
-Einar K.

Lora said...

Við komum tvö fullorðin - og ég er til í eldhúsaðstoð. - Lora Einarsd.

Lora said...

Við komum tvö fullorðin - og ég er til í eldhúsaðstoð. - Lora Einarsd.

Hel said...

Til í að hjálpa við hvað sem er, Helga Lilja

Anonymous said...

Hæ Hæ og takk fyrir að standa í þessu fyrir okkur hin.
Við komum 4-5 fullorðin + 1 barn
kveðja,
Jóhanna Raganrs.

Anonymous said...

Að sjálfsögðu getum við hjálpað til í Eldhússtörfum eða hvað sem vantar

kv Eyrún /Siggi

Anonymous said...

við verðum 4-6 fullorðin og eitt barn
þórmar

Anonymous said...

ég mæti.
kv
Atli Bergmann